Heilsugæslan i Tjarnarbíó slær í gegn
Kómedíuleikhúsið í samstarfi við Í einni sæng frumsýndi hápólitíska gamanleikinn Heilsugæslan í Tjarnarbíó 12. mars liðinn fyrir smekkfullum sal áhorfenda. Önnur sýning var 15. mars og sú þriðja 19 mars og aftur fyrir smekkfullu húsi. Framundan eru fleiri sýningar á Heilsugæslunni í Tjarnarbíó og gengur miðasala vel. Laust er núna á laugardag 21. mars en uppselt daginn eftir. Aukasýning er komin í sölu 27. mars og einnig eru komnar fjórar aukasýningar í sölu í apríl. Miðasala fer fram á tix.is
Heilsugæslan er hápólitískur gamanleikur eftir Lýð Árnason lækni. Leikurinn stingur vissulega á ýmsum kílum er snertir heilbrigðiskerfið sem svo snertir okkur öll og er án vafa heitasta kartafla samfélagsins. Formið er tvíleikur þar sem leikararnir Elfar Logi Hannesson og Rakel Björk Björnsdóttir bregða sér í öll hlutverkin lækna sem sjúllanna, sjúklinganna sumsé. En alls koma 10 persónur við sögu. Ádeila er hluti af verkinu, mörgum steinum velt og upp vakna spurningar eins og hvort heilbrigðiskerfið sé eins gott og af er látið, er það hugsanlega farið að vinna gegn tilgangi sínum, er aukinni eftirspurn sjúkdóma svarað með meira framboði, hvaða tilgangi þjónar góð heilsa og erum við kannski farin að meta lífið í magni fremur en gæðum?
Þar sem verkið er samið af lækni gefur það áhorfandanum öðruvísi sýn inn í það völundarhús sem heilbrigðiskerfið vissulega er og sérstaklega gæti verið áhugavert fyrir áhorfendur að upplifa sjónarhorn þeirra sem starfa í sjálfu kerfinu og vita hvað býr að tjaldabaki. Einnig kemur fram fjölbreytt flóra af sjúklingum á öllum aldri og kynjum, sannkallaður þverskurður af samfélaginu.
Heilsugæslan var fyrst sýnd árið 2009 af Kómedíuleikhúsinu og Í einni sæng en nú hefur verkið verið uppfært enda heimsfaraldur og allskonar greiningar komið inní heilbrigðisgeirann síðan.
Miðasala er á tix.is


