
miðvikudagurinn 1. ágúst 2012
Skáldið á Þröm á Act alone
Hin einstaka leiklistarhátíð Act alone verður haldin dagana 9. - 12. ágúst. Að þessu sinni verður hátíðin haldin á Suðureyri við Súgandafjörð en þetta er níunda árið sem Act alone er haldin. Kómedíuleikhúsið tekur þátt í fjörinu og sýnir hina rómuðu sýningu Náströnd - Skáldið á Þröm. Sýnt verður í Þurkveri á Suðureyi á opnunardegi Act alone fimmtudaginn 9. ágúst. Dagskrá Act alone í ár er sérlega vönuð og eineikin. Eitthvað fyrir alla og það er frítt inná alla viðburði hátíðarinnar, sem er nú bara einleikið. Meðal þeirra sem koma fram á Act alone 2012 má nefna Árna Pétur Guðjónsson með leikinn Svikarinn, Steinunn Ketilsdóttir sýnir Grímuverðlaunasýninguna Superhero og Valgeir Guðjónsson verður með einstaka tónleika. Allar upplýsingar um Act alone eru á heimasíðu hátíðarinnar á slóðinni
www.actalone.net
13.05.2013 / 12:21
Vesturbyggð gerir verkefnasamning við Kómedíuleikhúsið
Það var sannarlega kómískur dagur á laugardag, 11. maí, á Patreksfirði og mikið um að vera. Þá var undirritaður verkefnasamningur milli Kómedíuleikhússins og Vesturbyggðar. Samningurinn felst í því að á árinu mun Vestubyggð versla af Kómedíuleikhúsinu þrjú verkefni til ... Meira13.05.2013 / 10:28


