
miðvikudagurinn 19. ágúst 2015
Grettisstund fyrir austan á helginni
Samstarf Kómedíuleikhússins og Einars Kárasonar, skálds, með Grettis sögu heldur áfram á helginni. Eystra fer fram hin árlega hátíð Ormsteiti og meðal þess sem boðið er uppá á því menningarhlaðborði er Grettisstund með Einari Kára og Elfari Loga. Um tvær sýningar er að ræða sú fyrri í Sláturhúsinu Egilsstöðum á laugardag kl.17. Daginn eftir sunnudaginn 23. ágúst verður Grettisstund í Baðstofunni í Óbyggðasetrinu Egilsstöðum í Fljótsdal.
Þeir félagar hafa verið með Grettisstund bæði í Fischersetri á Selfossi og á Gíslastöðum Haukadal. Formið er á þann veg að Einar Kárason hefur leik með einstöku erindi um hina mögnuðu Grettis sögu. Kómedíuleikarinn, Elfar Logi, tekur svo við og sýnir einleikinn Gretti. Vel hefur verið tekið í Grettisstundina og mjög líklegt að stundirnar verði mun fleiri á komandi leikári.
20.03.2026 / 09:53
Heilsugæslan i Tjarnarbíó slær í gegn
Kómedíuleikhúsið í samstarfi við Í einni sæng frumsýndi hápólitíska gamanleikinn Heilsugæslan í Tjarnarbíó 12. mars liðinn fyrir smekkfullum sal áhorfenda. Önnur sýning var 15. mars og sú þriðja 19 mars og aftur fyrir smekkfullu húsi. Framundan eru fleiri sýningar á Hei... Meira20.11.2025 / 09:52

