
fimmtudagurinn 17. nóvember 2011
Forsala á Bjálfansbarnið og bræður hans hefst í dag kl.14.14
Jólin koma, jólin koma já bara alveg rétt bráðum. Hvað er betra en að stytta biðina með því að bregða sér á sannkallað jólaævintýri. Kómedíuleikhúsið frumsýnir nýtt jólaleikrit Bjálfansbarnið og bræður hans laugardaginn 26. nóvember í Listakaupstað á Ísafirði. Hér er á ferðinni ævintýralegt jólaleikrit um vestfirsku jólasveinana sem hafa ekki sést í mannabyggðum í eina öld ef ekki meir. Það má því búast við miklu ævintýri þegar þessir kappar snúa aftur og munu örugglega, að hætti jólasveina mála bæinn rauðann. Bjálfansbarnið og bræður hans verður fyrst sýnt síðustu helgina í nóvember og eftir það allar helgar í desember. Sérstök jóla- og hátíðasýning verður milli jóla og nýárs þann 30. desember. Forsala á allar sýningar hefst í dag kl.14.14 í Vestfirzku verzlunni á Ísafirði. Miðaverðið er sannkallað jólaverð aðeins 1.900.- kr.
Allir í leikhús fyrir jólin.
20.03.2026 / 09:53
Heilsugæslan i Tjarnarbíó slær í gegn
Kómedíuleikhúsið í samstarfi við Í einni sæng frumsýndi hápólitíska gamanleikinn Heilsugæslan í Tjarnarbíó 12. mars liðinn fyrir smekkfullum sal áhorfenda. Önnur sýning var 15. mars og sú þriðja 19 mars og aftur fyrir smekkfullu húsi. Framundan eru fleiri sýningar á Hei... Meira20.11.2025 / 09:52

