
mánudagurinn 11. febrúar 2019
Bjössi Thor semur tónlistina í Dimmalimm
Hinn landskunni gítaristi og músíkant þjóðar Björn Thoroddsen, frá Bíldudal, vinnur nú hjá Kómedíueikhúsinu. Verkefnið er að semja tónlist við hina hugljúfu og ævintýralegu sýningu Dimmalimm. Leikritið verður frumsýnt í mars í Þjóðleikhúsinu. Þetta er í annað sinn sem Bjössi semur tónlist fyrir Kómedílulleikhússins en síðast samdi hann sælla minninga músík við sögulega stykkið EG. Bjössa þarf vart að kynna en samt ætlum við að gera það hér enda aldrei góð vísa of oft kveðin.
Björn Thoroddsen (Bjössi Thor) hefur sl ár verið einn af atkvæðamestu jazztónlistarmönnum á Íslandi og hlotið ýmsar viðurkenningar á sínum ferli m.a. jazztónlistarmaður ársins 2003. Björn hefur unnið með mönnum á borð við Al De Meola, Robben Ford og Tommy Emmanuel en Robben Ford er stjórnandi og útgefandi síðustu plötu Bjössa. Björn hefur verið aðalflytjandi og stjórnandi á Guitarama, alþjóðlegri gítarhátíð sem farið hefur víða um heim. Bjössi heldur tónleika reglulega í N-Ameríku og Evrópu.
20.03.2026 / 09:53
Heilsugæslan i Tjarnarbíó slær í gegn
Kómedíuleikhúsið í samstarfi við Í einni sæng frumsýndi hápólitíska gamanleikinn Heilsugæslan í Tjarnarbíó 12. mars liðinn fyrir smekkfullum sal áhorfenda. Önnur sýning var 15. mars og sú þriðja 19 mars og aftur fyrir smekkfullu húsi. Framundan eru fleiri sýningar á Hei... Meira20.11.2025 / 09:52

