Einleikjasaga Íslands
Tilboðsverð til þín: 1.499.- kr
Frí heimsending
Panta: komedia@komedia.is
Höfundur: Elfar Logi Hannesson
Bls. 264
2017
Einleikjasagan er alveg einstök og miklu lengri en margur heldur. Sem listform hefur líklega formið ávallt verið til, eða alveg frá því að leikur taldist til lista. Sama á við um einleikjasögu Íslands, og þó hér sé sagan sögð frá 19. öldinni með hinum einstöku farandleikurum, þá er næsta víst að lelikurinn hófst mun fyrr. Án efa bara strax í landnámi þegar blessað fólkið sat í skálum sínum í skammdeginu.
Í þessu einstaka bókverki segir einleikarinn Elfar Logi Hannesson sögu einleiksins á Íslandi. Allt frá landnámi til farandleikara og loks inní sjálft leikhúsið sem hefur verið heimavöllur einleiksins síðustu hundrað árin eða svo. Vel má segja að ritari sé á heimavelli, því síðustu tvo áratugi hefur hann fátt annað gert en að elika einn, hver svo sem ástæðan er fyrir því. Ýmsir telja það vera vegna þess að hann sé bara svona lélegur leikari.