Fara beint í efnið
Kómedíuleikhúsið, forsíða

Gjafavörur og bækur

Veldu það sem þú vilt, sendu okkur pöntunina og greiddu með millifærslu. Við sendum vörurnar með Póstinum og sendingarkostnaðurinn bætist við. Öll verð eru með VSK.

Dimmalimm Bækur Leikskrár

Dimmalimm

Sagan af Dimmalimm eftir Mugg. Kómedíuleikhúsið frumsýndi leikritið í Þjóðleikhúsinu árið 2019 og það var tilnefnt sem sýning ársins á Sögum, verðlaunahátíð barnanna.

Dimmalimm er fallegt gjafasett úr hinu ástsæla ævintýri eftir Guðmund Thorsteinsson, Mugg. Gefðu ævintýralega gjöf, gefðu Dimmalimm.

Gjafa- og matarsett

Skál og bolli úr postulíni í gjafaöskju. Má fara í uppþvottavél og örbylgjuofn.

  • Gjafaaskja með skál og bolla. Á myndinni krýpur Dimmalimm við vatn og gefur tveimur svönum brauð, kastali í fjarska

    Gefur svaninum að borða

    Gjafa- og matarsett: skál og bolli

    4.900 kr.

  • Gjafaaskja með skál og bolla. Á myndinni stendur Dimmalimm í bleiku pilsi á árbakka og svanur syndir hjá

    Dimmalimm og svanurinn

    Gjafa- og matarsett: skál og bolli

    4.900 kr.

  • Gjafaaskja með skál og bolla. Á myndinni sitja Dimmalimm og Pétur prins með kórónur í hásætum

    Dimmalimm og Pétur

    Gjafa- og matarsett: skál og bolli

    4.900 kr.

Hnífapör

Skeið, hnífur og gaffall fyrir börn í gjafaöskju. Má fara í uppþvottavél.

  • Gjafaaskja með skeið, hníf og gaffli. Á sköftunum er mynd af Dimmalimm í bleiku pilsi

    Dimmalimm hnífapör

    Hnífapör: skeið, hnífur og gaffall

    2.900 kr.

  • Gjafaaskja með skeið, hníf og gaffli. Á sköftunum er mynd af Pétri prinsi með kórónu og rauða skikkju

    Pétur hnífapör

    Hnífapör: skeið, hnífur og gaffall

    2.900 kr.

  • Gjafaaskja með skeið, hníf og gaffli. Á sköftunum er mynd af svani með kórónu

    Svanurinn hnífapör

    Hnífapör: skeið, hnífur og gaffall

    2.900 kr.

Bolir

  • Hvítur stuttermabolur með mynd Muggs af Dimmalimm undir blómaboga og áletruninni Sagan af Dimmalimm

    Dimmalimm bolur

    Barnastærðir

    Gefðu ævintýralega gjöf, gefðu Dimmalimm bol.

    3.000 kr.

    Veldu stærð

Leikskráin

  • Leikskrá: Dimmalimm

    Leikskrá og handrit leiksins, 2019

    Leikskráin úr sýningunni í Þjóðleikhúsinu, með öllu handritinu.

    500 kr.

Bækur

Kómedíuleikhúsið hefur gefið út um þrjátíu bækur og hljóðbækur, flestar um leiklist og sögu Vestfjarða.

  • Kápa bókarinnar Leiklist á Ísafirði: svarthvít mynd úr leiksýningu á gulum grunni

    Leiklist á Ísafirði

    Elfar Logi Hannesson
    2025, 340 bls., innbundin

    Hér er hún loks komin fjórða vestfirska leiksögubókin og að þessu sinni er leiksaga höfuðstaðarins Ísafjarðar í sviðsljósinu.

    Lesa meira: Leiklist á Ísafirði

    Fjallað verður um sögu leiklistarinnar í kaupstaðnum við flæðarmálið allt frá því að fyrsta leikverkið fór á svið og til þeirra nýjustu. Bókin er prýdd fjölda mynda úr hinni löngu og sögulegu leiksögu Ísafjarðar.

    Í bókinni Leiklist á Ísafirði verður leitast við að fanga sögu leiklistarinnar á Ísafirði allt frá fyrstu leikuppfærslu til þeirra nýjustu. Víst er erindið líkt og leikarans sem á hverju kveldi finnst líkt og hann sé að kasta sér fyrir björg um leið og ljósin koma upp og leikur hefst. Það er nokk víst að eitthvað mun ekki komast í sviðsljós þessarar ísfirsku leiksögu sem sýnir bara fram á það hve viðamikill þáttur leikhúsið er í sögu bæjarins við flæðarmálið. Víst hefur ritari oft þurft að gera einsog leikarinn sem vildi þjálfa sína rödd sem best og hélt því út í sjaldgæfan vind og storm og svo niður í flæðarmálið hvar hann öskraði á móti öldunni sem knúsaði ekki steina flæðarmálsins heldur klappaði þeim full harkalega. Það sagði nefnilega enginn að þetta yrði auðvelt. Það er nefnilega mjög auðvelt að tapa sér í heimildum leiksögunnar því það rekur ávallt eitthvað nýtt á leikfjöruna sérlega eftir því sem meira er leitað og grúskað. Svo lukkulega vildi hins vegar til að ritara var gefin nálína til að ljúka þessari sögu um leiklist á Ísafirði sem nú er loks komin á prent og á spjöld sögunnar.

    Kæri lesandi nú drögum við tjöldin frá í hinu ísfirska leikhúsi, við erum komin í flæðarmálið þaðan sem allar sögur eiga sitt upphaf.

    Fyrri vestfirsku leiksögubækurnar eru Leiklist á Bíldudal, Leiklist og list á Þingeyri og Leiklist í Bolungarvík.

    5.000 kr.

  • Geisli

    Úrval úr blaðinu á Bíldudal 1946 til 1960
    2018, 105 bls.

    Fréttir og fróðleikur um Bíldudal og Arnarfjörð úr safnaðarblaði séra Jóns Kr. Ísfeld.

    1.499 kr.

  • Kápa bókarinnar Leikræn tjáning: stúlka með rautt trúðsnef á leiksviði, á appelsínugulum grunni

    Leikræn tjáning

    Elfar Logi Hannesson
    2014, 89 bls.

    Kennslubók í leikrænni tjáningu fyrir fólk á öllum aldri. Hentar fyrir alla þá sem vinna með leikræna tjáningu hvort heldur í kennslu á leiklistarnámskeiðum eða bara á ættarmótinu.

    1.500 kr.

  • Kápa bókarinnar Hamlet prins af Danmörku: teikning af hauskúpu og af Ingivaldi Nikulássyni á gráum grunni

    Hamlet prins af Danmörku

    William Shakespeare
    Þýðing Ingivaldar Nikulássonar
    2023, 207 bls.

    Hér er á ferðinni þýðing Ingivaldar Nikulássonar, alþýðufræðimanns frá Bíldudal, á Hamlet prins af Danmörku eftir William Shakespeare.

    Lesa meira: Hamlet prins af Danmörku

    Ástæða þýðingarverksins er sú að á Bíldudal var ekki til þýðing Matthíasar Jochumssonar á Hamlet á þessum tíma. Hins vegar var verkið til á frummálinu og því var ekkert annað í stöðunni en að snara verkinu yfir á hið ilhýra og það gerði Ingivaldur. Þetta gjörðist laust fyrir miðja síðustu öld og nú er þýðingin loksins komin út.

    3.000 kr.

  • Kápa bókarinnar Muggur, saga af strák: teiknaður strákur í matrósafötum á grænum grunni

    Muggur, saga af strák

    Elfar Logi Hannesson og Marsibil G. Kristjánsdóttir
    2017, 32 bls.
    Fæst einnig á þýsku

    Hér er á ferðinni einlæg saga fyrir börn á öllum aldri. Bókin fjallar um strákinn Guðmund er kallaður var Muggur. Hann á heima í litlu þorpi fyrir vestan og víst gjörist þar margt ævintýralegt.

    Lesa meira: Muggur, saga af strák

    Höfundar bókarinnar Muggur saga af strák eru listahjónin Elfar Logi Hannesson og Marsibil G. Kristjánsdóttir. Bókin er ríkulega myndskreytt af Marsibil en Elfar Logi gefur orðin í sögunni.

    2.300 kr.

  • Kápa bókarinnar Matti, saga af drengnum með breiða nefið: teikning af skeggjuðum manni og dreng undir snjókomu

    Matti, saga af drengnum með breiða nefið

    Elfar Logi Hannesson og Marsibil G. Kristjánsdóttir
    2024, 47 bls., innbundin

    Söguleg saga um bernsku Matthíasar Jochumssonar frá Skógum í Þorskafirði er síðar varð klerkur og skáld, þjóðskáld.

    Lesa meira: Matti, saga af drengnum með breiða nefið

    Það var ekki bara að pilturinn Matti hafi verið kallaður drengurinn með breiða nefið, heldur og drengurinn í gráa klútnum. Eða drengurinn í skinnsokknum eða jafnvel drengurinn með breiða nefið. Sjálfur kallaði hann sig bara Matta, Matta Skratta, bætti hann gjarnan við og hló við. Inn í söguna fléttast fjölmargar persónur úr sagnaarfi Matta. Af þeim nægir að nefna hans þekktasta fír Skugga-Svein, einnig koma við sögu Galdra-Héðinn, Gudda, Jón sterki og meira að segja Ketill Skrækur.

    Höfundar bókarinnar eru listahjónin Elfar Logi Hannesson og Marsibil G. Kristjánsdóttir. Elfar skapar textann en Marsibil myndirnar. Þetta er önnur barnabók þeirra hjóna en fyrri bókin er einnig sótt í bernskuævi listamanns fyrir vestan. Þar er um að ræða bernsku Guðmundar Thorsteinssonar sem var kallaður Muggur. Enda heitir bókverkið Muggur saga af strák.

    3.000 kr.

  • Leiklist og list á Þingeyri

    Elfar Logi Hannesson
    2020, 196 bls.

    Leiklistar- og listasaga Þingeyrar og Dýrafjarðar, allt frá landnámi til okkar daga.

    Uppselt

  • Leiklist á Bíldudal

    Elfar Logi Hannesson
    2015, 196 bls.

    Leiklistarsaga Bíldudals frá fyrstu leiksýningunni 1894 til okkar daga.

    Uppselt

  • Einleikjasaga Íslands

    Elfar Logi Hannesson
    2017, 264 bls.

    Saga einleiksins á Íslandi, frá farandleikurum 19. aldar inn í leikhúsið.

    Uppselt

  • Allir dagar eiga kvöld

    Ljóðaúrval Stefáns frá Hvítadal
    2018, 84 bls.

    Ljóð Stefáns frá Hvítadal í veglegri útgáfu, myndskreytt af móður, dætrum og barnabörnum.

    Uppselt

  • Um jólin

    Þórarinn Hannesson
    2013, 33 bls.

    Jólaljóð um Grýlu og karlana hennar, vestfirska jólavætti, þrettándann og skötuna. Teikningar eftir Marsibil G. Kristjánsdóttur.

    Uppselt

Leikskrár

Hver leikskrá er í raun heil bók, því handrit leiksins fylgir. Hver kostar 500 kr., og allar sex saman kosta 1.500 kr. Leikskráin úr Dimmalimm er undir Dimmalimm hér fyrir ofan.

  • Allar sex leikskrárnar

    Helmingsafsláttur þegar þær eru keyptar allar

    Dimmalimm, Gísli á Uppsölum, EG, Listamaðurinn með barnshjartað, Með fjöll á herðum sér og Gísli Súrsson á ensku.

    1.500 kr.

  • Leikskrá: Gísli á Uppsölum

    Leikskrá og handrit leiksins

    500 kr.

  • Leikskrá: EG

    Leikskrá og handrit leiksins

    500 kr.

  • Leikskrá: Listamaðurinn með barnshjartað

    Leikskrá og handrit leiksins

    500 kr.

  • Leikskrá: Með fjöll á herðum sér

    Leikskrá og handrit leiksins

    500 kr.

  • Leikskrá: Gísli Súrsson (á ensku)

    Leikskrá og handrit leiksins

    500 kr.

Pöntunin þín

Karfan er tóm. Veldu vörur hér fyrir ofan.

    Við sendum þér staðfestingu í tölvupósti og svo heildarupphæðina með sendingarkostnaði. Vörurnar fara í póst þegar greiðslan hefur borist.