HUGSAÐ UPPHÁTT
10. 09 2007. 10:36 KRAFTAVERK Í SELÁRDAL Í sumar skrapp ég á æskustöðvarnar og brugðum við okkur familían í leiðinni inní Selárdal í Ketildölum í Arnarfirði. Höfum reyndar farið þangað ótal sinnum til að skoða þennan sögufræga stað já má segja að þetta hafi verið vinsæll sunnudagsrúntur. Selárdalur er engin venjulegur dalur enda hafa þar margir galdramenn verið s.s. Árum Kári, fræðimenn séra Páll Björnsson, skáld Jón Þorláksson sem flestir þekkja sem Jón á Bægisá, stjórnmálamenn Hannibal Valdimarsson og þar bjó líka einbúinn Gísli á Uppsölum. Einn er ótalin og er það sá sem hefur dregið þúsundir ferðamanna í dalinn síðustu áratugi. Það er listamaðurinn Samúel Jónsson sem var kallaður Listamaðurinn með barnshjartað. Hann reisti þar eigið listasafn og það þegar hann var komin yfir miðjan aldur eða á árunum 1947 -1967. Þetta safn er engu líkt. Fullt af styttum á borð við sel og kappann Leif heppna og stórkostlegur ljónagosbrunnur. Þar að auki byggði hann sér einstakt hús sem átti að vera listasafn en náði þó ekki að ljúka því. Hann byggði líka kirkju og sagan á bak við tilurð hennar er náttúrulega engu lík einsog listamanninum hættir. Hann hafði gert altaristöflu og vildi færa Selárdalskirkju hana en þar var hins vegar tafla fyrir og var því gjöfin afþökkuð. Hvað átti þá að gera? Jú, auðvitað bara byggjað kirkju fyrir altaristöfluna. Og það gerði Samúel. Þetta einstaka listasafn lá í niðurníðuslu í mörg ár. En það eru sem betur fer enn til hugsjónamenn. Fyrir nokkrum árum tók hópur manna sig saman um að byggja upp safnið á nýjan leik og nefnist hópurinn Félag um endurreisn Listasafns Samúels í Selárdal. Fjölmargir hafa stutt verkefnið bæði ríki og fyrirtæki (en þó mættu báðir taka ennfrekar upp budduna) og svo hefur þýskur listamaður að nafni Gerrhard Köning komið vestur ásamt fríðu föruneyti og byggt upp verkin og húsin. Ég á aðeins eitt orð til að lýsa dugnaði hópsins og það er BRAVÓ. Þegar ég kom þarna í sumar féllust mér alveg hendur. Vá, vá, hljómaði um dalinn þetta er göldrum líkast einsog við á í Selárdal. Rúsínan í pylsuendanum var að koma inní kirkjuna þar sem var einstök sýning um listamanninn s.s. blaðagreinar og svo geggjuð myndlistarsýning en Samúel var skemmtilegur málari. Sérlega gaman var svo að skoða gestabókina sem var no. 2 þetta sumarið og sjá allan þann fjölda sem kemur að skoða safnið. Sko ef þetta er ekki Menningartengd ferðaþjónusta þá veit ég ekki hvað. Hér er einstakt tækifæri til að byggja upp veglegt safn og möguleikarnir eru óteljandi. Í þessum fagra firði hefur skórinn minnkað og þrengst meira en góð hófu gegnir. En hér er möguleiki á að byggja upp og skapa atvinnu. Ég sé fyrir mér að þarna gætu allavega 5 manns starfað yfir ferðamannatímann. Veitt leiðsögn um safnið og hvað þá dalinn allan ég meina Árin Kári og galrarnir, Gísli á Uppsölum sagan er þarna bara um allt. Einn mundi starfa sem leikari og vera með sýningu á hverjum degi byggða á ævi Samúels eða einhverju öðru Seldærsku. Svo væri náttúrulega geggjað að vera með lítinn kaffiskála þarna og þar væri þriðji starfsmaðurinn kominn. Það er endalaust hægt að fabúlera með þetta og ef einhver tæki mig á orðinu og skellti þessu í framkvæmd þá yrði nú fjör og ég mundi glaður taka þátt í því ævintýri. Félagið góða sem unnið hefur þetta kraftaverk í Selárdal ætlar enn að halda áfram uppbyggingunni og við sem heima sitjum og höfum notið þessa frábæra safns getum nú stutt þetta verkefni með því að leggja inná reikning þeirra sem er: 512-26-4403. Kennitala: 440398-2949. Og munið það er hugurinn sem skiptir máli í krafti fárra króna. Safnast þegar....osfrv.
Til baka
|
|