Fréttir
Kómedíuleikhúsið
Hljóðbókaklúbbur Kómedíuleikhússins
Sýningar
Verslun
Dagatal
Dimmalimm
Gísli Súrsson
Act alone
Tenglar
Hugsað upphátt
Hafa samband








Heimilisfang / contact information:
Túngata 17
400 Ísafjörður
Iceland
Tel. 8917025
HUGSAÐ UPPHÁTT

20. 04 2007. 21:58
AÐ SVARA TÖLVUPÓSTI
Netið er alveg magnað tæki og þá sérrílagi tövlupósturinn ég nota hann mjög mikið enda miklu þægilegra en að vera með tólið (þ.e. símann) á lofti allan daginn. En það er hinsvegar eitt sem fer alveg fjarskalega í taugarnar á mér það er þegar menn svara ekki tövlupósti. Þá er ég ekki að tala um Nígeríuviagra pósta. Heldur bara tölvupósta frá venjulegu fólki. Ég meina að hverju þá að vera með netfang ef maður svarar ekki póstinum sem maður fær. Mín regla er að svara öllum tölvupóstum sem ég fæ að undanskildum náttúrulega áðurnefndum Nígeríudóti. Það hlýtur að teljast bara til nútíma kurteisi að gera það. Það þarf ekkert að vera langorður einfaldlega er þetta staðfesting á því að þú hafir fengið póst frá viðkomandi. Sama hvað erindið er og ef það er eitthvað flókið þá er bara hægt að segja Því miður...orð sem mikið er notað hjá sjóðum og stórfyrirtækjum og er mjög kurteist orðalaga og þar að auki alveg skírt. Ætla nú ekkert að fara æsi mig neitt segi bara einsog maðurinn: Ég vildi bara nefna þetta við ykkur.

Til baka


Free Hit Counter