Fréttir
Kómedíuleikhúsið
Hljóðbókaklúbbur Kómedíuleikhússins
Sýningar
Verslun
Dagatal
Dimmalimm
Gísli Súrsson
Act alone
Tenglar
Hugsað upphátt
Hafa samband








Heimilisfang / contact information:
Túngata 17
400 Ísafjörður
Iceland
Tel. 8917025
SÍÐASTI DAGUR SVEINS SKOTTA

Persónur og leikendur:

Svein skotti Björnsson
Elfar Logi Hannesson
Manga, Jón lærði, prestsmaddama, biskup o.fl
Halldóra Malín Pétursdóttir
Axlar-Björn, Jón ríðumaður, prestur o.fl
Ársæll Níelsson
Þórdís, vinnukona, bóndakona o.fl
Henna-Riikka Nurmi
Sýslumaður o.fl
Benóný Ægisson
Böðull o.fl
Steingrímur Guðmundsson
Handrit: Benóný Ægisson
Tónlist: Benóný Ægisson og Steingrímur Guðmundsson
Dansar: Henna-Riikka Nurmi
Leikmynd og búningar: Marsibil G. Kristjánsdóttir
Hljóðfæraleikur: Benóný Ægisson og Steingrímur Guðmundsson
Lengd: U.þ.b. 70 mínútur

Síðasti dagur Sveins skotta er ljóðleikur eða söngdans þar sem jafngild eru leiklist, tónlist og dans. Það er svört kómedía sem gerist á 17. öld og fjallar um Svein Björnsson þjóf, nauðgara og galdramann sem var hengdur í Rauðuskörðum á Barðaströnd 1648. Sveinn þessi var enn í móðurkviði þegar faðir hans Axlar-Björn var tekinn af lífi fyrir morðverk sín. Uppsetningin er í samstarfi við Kómedíuleikhúsið á Ísafirði og var verkið frumsýnt 18. mars 2010 í Edinborgarhúsinu.
Síðasti dagur Sveins skotta gerist á síðasta ævidegi Sveins þar sem hann bíður aftöku sinnar og rifjar upp líf sitt og ástæður þess að svona er komið fyrir honum. Konur hafa verið hans örlagavaldar, fyrst móðir hans sem gerði honum í móðurkviði að hefna föður síns, síðan fórnarlömb hans og að lokum konan sem leikur á hann og hefur hann undir.
Tónlist og dans leika stórt hlutverk í verkinu en tónlist og textar eru að vissu marki byggð á gamalli íslenskri þjóðlagahefð.
Uppsetning verksins er styrkt af menningarráði Vestfjarða og fyrirtækjum á Ísafirði sem eru vinveitt listum og menningu.

HEILSUGÆSLAN

Leikarar: Elfar Logi Hannesson, Margrét Sverrisdóttir
Leikmynd: Marsibil G. Kristjánsdóttir
Höfundur/leikstjórn: Lýður Árnason
Sýningartími: 60 mín
Frumsýnt: 2. október 2009 í Arnardal
Íslendingar hafa löngum státað af besta heilbrigðiskerfi í heimi. Við hrósum okkur yfir háum meðalaldri, þjónustu í hæsta gæðaflokki og frábærum læknum. En er kerfið eins gott og af er látið? Er það hugsanlega farið að vinna gegn tilgangi sínum? Er aukinni eftirspurn sjúkdóma svarað með meira framboði? Hvaða tilgangi þjónar góð heilsa? Metum við líf í magni eða gæðum? Leikritið, Heilsugæslan, er samið af lækni, Lýð Árnasyni, og gefur áhorfandanum sýn inn í þetta völundarhús og það sem býr að tjaldabaki. Heilsugæslan er gamanleikur og öll hlutverk í höndum tveggja leikara, þeirra Elfars Loga Hannessonar og Margrétar Sverrisdóttur. Heilsugæslan er hápólitískt leikrit og umfjöllunarefnið brennandi á íslenzku þjóðfélagi, ekki sízt núna, í skugga niðurskurðar. Heilsugæslan fyrir alla!



AUÐUN OG ÍSBJÖRNINN
Leikari: Elfar Logi Hannesson
Leikmynd: Kristján Gunnarsson, Marsibil G. Kristjánsdóttir
Búningar: Alda Veiga Sigurðardóttir
Ísbjörn/leikmunir/leikgerfi: Marsibil G. Kristjánsdóttir
Tónlist: Hrólfur Vagnsson 
Söngur: Bára Grímsdóttir, Guðmundur Reynisson, Steindór Andersen
Höfundur/leikstjórn: Soffía Vagnsdóttir
Sýningartími: 40 mínútur
Frumsýnt: 1. apríl 2009 í Tjöruhúsinu Ísafirði
Panta: komedia@komedia.is

Leikritið Auðun og ísbjörninn er byggt á Íslendingaþættinum Auðunar þáttur vestfirzka sem er án efa besti og vinsælasti allra Íslendingaþátta. Hér segir frá bóndastrák að vestan sem leggst í víking og á vegi hans verður taminn ísbjörn. Auðun ákveður að gefa Danakonungi dýrið og hefst þá ævintýralegt ferðalag piltsins og bjarnarins.

VERKIÐ ER UPPFULLT AF GLETTNI OG HÚMOR...

KÓMEDÍULEIKHÚSIÐ SANNAR HÉR ENN OG AFTUR AÐ EINLEIKHÚSI ERU ENGIN TAKMÖRK SETT, JAFNVEL EKKI AÐ RÁÐAST Í JAFN ÞEKKTA OG VIÐBURÐARÍKA ÍSLENDINGAÞÆTTI OG GÍSLA SÖGU SÚRSSONAR OG AUÐUNAR ÞÁTT VESTFIRZKA

Thelma Hjaltadóttir, Bæjarins besta

TÓNLISTIN SKIPAR VEGLEGAN SESS Í VERKINU, ÞAR SEM KALLAST Á ÍSLENSKAR STEMMUR OG EVRÓPSK MIÐALDARMÚSÍK.
ÞAÐ VERÐUR ENGINN SVIKINN AF LÉTTRI KÓMEDÍU KÓMEDÍULEIKHÚSSINS.

skutull.is

PÉTUR OG EINAR

                                                           Ljósmynd: Ágúst G. Atlason.
Leikari: Elfar Logi Hannesson.
Tónlist: Hrólfur Vagnsson ofl.
Höfundur, leikstjórn: Soffía Vagnsdóttir.
Sýningartími: 45 mín.
Frumsýnt: 31. maí 2008 í Einarshúsi Bolungarvík.
Panta miða: komedia@komedia.is

Elfar Logi túlkar líf og störf þeirra manna sem settu hvað mestan svip á Bolungarvík á miklum uppgangstímum og sveipar sögu þeirra ævintýraljóma. Frumkvöðlarnir Pétur Oddsson og Einar Guðfinnsson voru miklir athafnamenn hvor á sínum tíma og stjórnuðu stórveldum sínum af skörungsskap. Þeir bjuggu báðir í húsi harma og hamingju, Péturshúsi sem síðar var nefnt Einarshús.
Í sýningunni leiða Soffía Vagnsdóttir og Elfar Logi saman hesta sína öðru sinni en á síðasta ári settu þau upp sýninguna Jólasveinar Grílusynir sem sýnd var við góðan orðstýr í Tjöruhúsinu. Þar að auki voru íbúar bæjarins kallaðir til aðstoðar og brugðu þeir sér í hljóðver í Bolungarvík og sungu með íðilfögrum röddum, allt frá jólalögum og sálmum til vel þekktra þorrablótsvísna.
Það var Ragna Jóhanna Magnúsdóttir veitingamaður í Einarshúsi sem átti frumkvæðið að uppsetningu sýningarinnar og vinnur að fjármögnun verksins. Fékk hún Elfar Loga og Kómedíuleikhús hans til liðs við sig til að koma sögunni á fjalirnar.



BÚLÚLALA - ÖLDIN HANS STEINS


Leikari: Elfar Logi Hannesson
Tónlistarmaður: Þröstur Jóhannesson
Sýningartími: 50. mín.
Aldurshópur: 13 ára og eldri.
Frumsýnt: 8. maí 2008 í Tjöruhúsinu Ísafirði.
Panta sýningu: komedia@komedia.is

Búlúlala - Öldin hans Steins er nýr ljóðaleikur fyrir leikara og tónlistarmann sem Kómedíuleikhúsið setur á svið til að minnast aldarafmælis Steins Steinars. En Aðalsteinn Kristmundsson, einsog hann hét réttu nafni, fæddist 13. október árið 1908 og er án efa eitt af merkustu skáldum þjóðarinnar. Í þessum leik, Búlúlala - Öldin hans Steins, verða flutt mörg af kunnustu ljóðum Steins í bland við þau sem minna eru þekkt. Elfar Logi Hannesson, leikari, flytur ljóðin í leik og tali en Þröstur Jóhannesson flytur frumsamin lög við ljóð Steins. Marsibil G. Kristjánsdóttir gerir leikmynd sem er portret af skáldinu. Meðal ljóða sem koma við sögu í sýningunni má nefna Að frelsa heiminn, Barn, Miðvikudagur, Söngvarinn, Tindátarnir, Þjóðin og ég og síðast en ekki síst Búlúlala ljóðið sem leikurinn er nefndur eftir.

JÓLASVEINAR GRÝLUSYNIR

                    Mynd: Halldór Sveinbjörnsson
Höfundar: Elfar Logi Hannesson, Soffía Vagnsdóttir
Leikari: Elfar Logi Hannesson

Brúður, grímur og leikmynd: Marsibil G. Kristjánsdóttir
Tónlist: Hrólfur Vagnsson
Ljós: Jóhann Daníel Daníelsson
Leikstjórn: Soffía Vagnsdóttir
Sýningartími: 55 mín.
Aldurshópur: 2ja ára og eldri.
Frumsýnt: 22. nóvember 2007 í Tjöruhúsinu Ísafirði.
Leikurinn hefur verið sýndur um 40 sinnum.
Panta sýningu: komedia@komedia.is

Hér er á ferðinni sprellfjörugur leikur um gömlu íslensku jólasveinanna og ýmsum spurningum reynt að svara um þessa skrítnu kalla. Hvers vegna er Stúfur minnstur jólasveinanna? Af hverju er Stekkjastaur svona hár til hnésins? Var fjórtándi jólasveinninn til? Eru Askasleikir og Bjúgnakrækir tvíburar? Allt þetta og miklu meira fáum við að heyra um í sýningunni um Grýlusynina. Því inní ævintýrið fléttast allt annað ævintýri um nútíma unglingspilt sem hefur verið sendur til fjalla að leita að kúnni Búkollu. Jólasveinar Grýlusynir er bráðfjörugur jólaleikur með mikið af tónlist og almennu jólasveinasprelli að hætti gömlu íslensku jólasveinanna.



ÉG BIÐ AÐ HEILSA - JÓNASARDAGSKRÁ
eg bid ad heilsa.jpg
                                                     Mynd: Halldór Sveinbjörnsson
Leikari: Elfar Logi Hannesson
Tónlistarmaður: Þröstur Jóhannesson
Sýningartími: 45. mín.
Undirbúningtími fyrir sýningu: 30 mín.
Aldurshópur: 13 ára og eldri.

Ég bið að heilsa er ljóðaleikur byggður á verkum Jónasar Hallgrímssonar, Listaskáldsins góða. Flutt eru mörg af ástsælustu ljóðum skáldsins í leik, tali og tónum. Meðal ljóða má nefna Gunnarshólma, Sáuð þið hana systur mína, Ferðalok, Vísur Íslendinga og að sjálfsögðu Ég bið að heilsa. Elfar Logi flytur ljóðin í leik og tali og Þröstur Jóhannesson flytur frumsamda tónlist við ljóð Jónasar.

SKRÍMSLI

Hugmynd: Elfar Logi Hannesson, Pétur Eggerz.
Leikari: Elfar Logi Hannesson
Handrit, leikmynd, leikstjórn: Pétur Eggerz.
Tónlist, hljóðmynd: Guðni Franzson.
Leikmunir: Kristján Gunnarsson, Marsibil G. Kristjánsdóttir, Valdimar Elíasson.
Skrímslateikningar: Marsibil G. Kristjánsdóttir.
Íslandskort: Guðbrandur Þorláksson.
Búningar: Alda Veiga Sigurðardóttir.
Rödd Sigurðar Finnbogasonar: Baldvin Halldórsson.
Rödd Sigþrúðar: Alda Arnardóttir.
Aldurshópur: 10 ára og eldri.
Frumsýnt í Baldurshaga á Bíldudal sumardaginn fyrsta 19. apríl 2007.

Frá örófi alda hafa skrímsl af ýmsum toga reglulega sést í sjó og vötnum á Íslandi og frásögur af samskiptum þeirra við landsmenn frá fyrstu öldum Íslandsbyggðar fylla heilu ritsöfnin. En hverjar eru þessar dularfullu verur, hvar er þær helst að finna og hvernig er best að bera kennsl á þær?
Þessum spurningum svarar skrímslafræðingurinn Jónatan Þorvaldsson og setur um leið fram óvéfengjanlegar sannanir fyrir tilvist skrímsla í sjó og vötnum á Íslandi.



ÉG HEITI VÖLUNDUR OG ÉG ER VITLAUS
Höfundur: Hallgrímur Oddsson
Leikgerð, leikari: Elfar Logi Hannesson
Sýningartími: 25. mínútur
Aldurshópur: 6 - 13 ára
Frumsýnt: 26. janúar 2007 í Grunnskóla Ísafjarðar.


Í þessari sýningu er unnið með þjóðsagnaarfinn og velt fyrir sér þeirri spurningu hvort maður sé vitlaus ef að maður trúir á drauga, tröll og aðrar verur. Vinir Völundar segja að hann sé vitlaus út af þessu en er það nú alveg víst? Völundur hefur tekið saman stutt erindi um málefnið og framkvæmir tilraunir í hverjum þjóðsagnaflokki. Að lokum má spyrja sig hver sé vitlaus eða er þetta allt ein hringavitleysa.

AUMINGJA LITLA LJÓÐIÐ

Höfundur: Hallgrímur Oddsson
Leikari: Elfar Logi Hannesson
Sýningartími: 25 mínútur
Aldurshópur: 11 ára og eldri.
Frumsýnt: 3. ágúst 2006 á Kirkjubóli í Bjarnardal í Önundarfirði.


Er ljóðið dautt? Þessi klassíska spurning hefur verið lífseig í gegnum árin og er höfundi verksins tilefni til vangaveltna um stöðu ljóðlistarinnar í nútíma samfélagi. Í verkinu er saga ljóðlistarinnar rakin í stuttu máli allt frá upphafi til nútímans. Fjölmörg ljóð eru í verkinu og eru þau öll sótt í smiðju vestfirskra skálda og má þar nefna Stein Steinarr, Jón úr Vör, Steingerði Guðmundsdóttur og Guðmund Inga Kristjánsson. Leikurinn hentar vel í elstu bekki grunnskóla sem og í framhaldsskóla.

ÁFRAM SPÁNN
Byggt á bókinni Sönn frásaga eftir Jón lærða.
Höfundur, leikari: Elfar Logi Hannesson
Sýningartími: 15 mínútur
Aldurshópur: 10 ára og eldri.
Frumsýnt: 24. júní 2006 á Dalbæ á Snæfjallastönd.


Árið 1615 urðu ein mestu mannvíg Íslandssögunnar er nefnd eru Spánverjavígin. Aðeins einn maður þorði að tala á móti vígunum en það var Jón lærði Guðmundsson. Einn afkomenda hans í dag, Jón Jónsson, er þetta mál mjög hugleikið. Hann hefur lengi langað til að biðja Spánverja afsökunar á vígunum með formlegum hætti og nú er tækifærið. Á Spáni verður haldið allsérstakt heimsmeistaramót og þangað ætlar hann ásamt nýskipuðu sérlandsliði. Til að peppa lið sitt upp og búa það undir mótið segir hann frá þessum skelfilegu atburðum sem gerðust á Vestfjörðum árið 1615 eins og forfaðir hans Jón lærði gerði á sínum tíma.
Hér er á ferðinni leikur sem er tilvalinn í grunn- og framhaldsskóla enda er hér fjallað um stórmál í Íslanssögunni sem vert er að minnast.

DIMMALIMM

Byggt á sögu eftir Mugg.
Höfundar: Elfar Logi Hannesson, Sigurþór A. Heimisson
Leikari: Elfar Logi Hannesson
Leikmynd: Kristján Gunnarsson, Marsibil G. Kristjánsdóttir, Sigurþór A. Heimisson
Búningar: Alda Veiga Sigurðardóttir
Brúður: Alda Veiga Sigurðardóttir,Marsibil G. Kristjánsdóttir
Tónlist: Jónas Tómasson, ofl.
Leikstjórn: Sigurþór A. Heimisson
Sýningartími: 40 mínútur.
Aldurshópur: 2 ára og eldri.
Frumsýnt: 16. febrúar 2006 á leikskólanum Sólborg Ísafirði.
Leikurinn hefur verið sýndur um 70 sinnum bæði hér heima og erlendis.
Panta sýningu:
komedia@komedia.is

Leikurinn er byggður á samnefndu ævintýri eftir Mugg og hefur notið gífurlegra vinsælda allt frá því ævintýrið kom fyrst út á bók árið 1942. Ævintýrið fjallar um prins sem verður fyrir því óláni að verða breytt í svan af norninni Bauju. Þegar Dimmalimm prinsessa kemur til sögunnar tekur sagan á sig ævintýralegar myndir enda getur allt gerst í ævintýrunum.
Hér er á ferðinni leiksýning fyrir börn á öllum aldri.

,,Í heildina er einleikurinn Dimmalimm fallegur, og ekki síst einlægur."
Eiríkur Örn Norðdahl, BB
Gagnrýni úr Bæjarins Besta (pdf skjal)
Lagið Dimmalimm (wma skjal)

LÍNUÍVILNUN
Höfundur: Hallgrímur Oddsson.
Leikari: Elfar Logi Hannesson
Sýningartími: 15. mínútur.
Aldurshópur: 18 ára og eldri.
Frumsýnt: 12. nóvember 2006 á Hótel Ísafirði.
Leikurinn hefur verið sýndur um 30 sinnum.


Maður kemur í pontu til að halda fyrirlestur um línuívilnun. Viðfangsefnið tekur hins vegar skjótum breytingum og leiðist umræðan yfir í allt önnur mál m.a. um skattinn og samskipti kynjanna. Að endingu kemst ræðumaður þó að niðurstöðu sem tengir öll þessi ólíku mál saman.
Tilvalinn leikur á árshátíðina, í afmæli eða bara allstaðar þar sem fólk kemur saman.


GÍSLI SÚRSSON
gislisursson.jpg
Höfundar: Elfar Logi Hannesson, Jón Stefán Kristjánsson
Leikari: Elfar Logi Hannesson
Leikmynd: Jón Stefán Kristjánsson
Leikmunir: Marsibil G. Kristjánsdóttir
Búningar: Alda Veiga Sigurðardóttir
Smiðir: Friðrik Stefánsson, Páll Gunnar Loftsson
Leikstjórn: Jón Stefán Kristjánsson
Sýningartími: 55. mínútur
Aldurshópur: 6 ára og eldri
Frumsýnt: 18. febrúar 2005 í Grunnskóla Þingeyrar
Leikurinn hefur verið sýndur um 200 sinnum bæði hér heima og erlendis
Panta sýningu:
komedia@komedia.is
Leikurinn er einnig til á ensku.
Verðlaun: Besta handrit; Leiklistarhátíðin Integra í Hannover þýskalandi.
Besta sýning, byggð á þjóðlegu efni; Leiklistarhátíðin Albamono í Korce í Albaníu.

ATH. SÝNINGUM LÝKUR Í ÁGÚST 2009.

Gísli Súrsson byggir á einni af þekktustu Íslendingasögunum. Leikurinn segir af örlögum Gísla Súrssonar og fjölskyldu hans sem taka land í Haukadal í Dýrafirði. Gengur þeim allt í haginn í fyrstu og verða brátt hinir mestu höfðingjar. En skjótt skipast veður í lofti og brátt er farið að fella mann og annan. Þetta endar loks með því að Gísli er útlægur ger.

,,HREINT LEIKHÚSÆVINTÝRI"
- Hrund Ólafsdóttir, Morgunblaðið

Komment áhorfenda á ensku útgáfu leiksins:
,,IT WAS A BRILLANT & FUNNY ONE-MAN SHOW"
- Nela frá Bavaria.

"I REALLY ENJOYED THE GISLI SÚRSSON - SAGA, THANKS
FOR THE GREAT ENTERTAINMENT !!"
- Julie frá Þýskalandi.


Gagnrýni Gísla Súrsson.
Vídjóbrot af sýningunni. (hægri smellið og veljið "Save target as...")



STEINN STEINARR

Handrit: Elfar Logi Hannesson og Guðjón Sigvaldason.
Leikari: Elfar Logi Hannesson.
Leikmynd og búningar: Guðjón Sigvaldason.
Ljós og hljóð: Guðjón Sigvaldason og Friðþjófur Þorsteinsson.
Leikstjórn: Guðjón Sigvaldason.
Frumsýnt 22. nóvember 2003 í Hömrum Ísafirði.
Sýningar: Í Hömrum og í Borgarleikhúsinu.

Steinn Steinarr er byggður á verkum skáldsins og ævi en 98% textans er eftir Stein sjálfan. Fræðslugildi verksins er mjög mikið þar sem hér er fjallað um eitt umdeildasta og jafnframt dáðasta skáld 20 aldarinnar á Íslandi.

MUGGUR

Handrit: Elfar Logi Hannesson og Vigdís Jakobsdóttir.
Leikari: Elfar Logi Hannesson.
Leikmynda- og búningahönnuður: Rebekka A. Ingimundardóttir.
Ljósahönnun: Jóhann Bjarni Pálmason.
Kvikmynd: Ragnar Bragason.
Tónlist: Ýmsir.
Leikarar í kvikmynd: Alvar Óskarsson, Eyvindur P. Eiríksson, Björg Caterine Jónsdóttir Blöndal, Oliver Másson.
Leikstjórn: Vigdís Jakobsdóttir.
Frumsýnt 24. október 2002 á Bíldudal.
Sýningar: Í Hömrum á Ísafirði og í Borgarleikhúsinu.

Einleikur um einn þekktasta málara og listamann Íslands Guðmund Thorsteinsson eða Mugg einsog hann er betur þekktur. Leikurinn rekur ævi hans frá æskuárunum á Bíldudal og þar til hann andast á 33 aldursári. Elfar Logi leikur Mugg og 16 aðrar persónur í leiknum.

Gagnrýni um Mugg
Stutt kvikmyndainnskot eru hér nýtt á hugvitssamlegan hátt. Þau setja mikinn svip á sýninguna án þess að verða yfirþyrmandi.

Fyrir augum áhorfenda birtist ákaflega hæfileikarríkur listamaður sem vanmetur sjálfan sig svo gegndarlaust að það dregur úr honum sjálfan lífskraftinn.

Elfar Logi talar beint til áhorfenda og undirstrikar þar með einsemd hins deyjandi listmálara.

Elfari Loga tekst vel að lýsa ferlinu frá áhyggjuleysi æsku og unglingsára til alvöru manndómsáranna og hvernig sjálfsefinn helst í hendur við hnignandi heilsu allt til hinna óumflýjanlegu endaloka.
Sveinn Haraldsson, Morgunblaðið


BÓSASAGA
Höfundar: Elfar Logi Hannesson, Róbert Snorrason.
Leikari: Elfar Logi Hannesson
Sýningartími: 15 mínútur
Frumsýnt: 6. nóvember 2002.
Aldurshópur: 16 ára og eldri.
Hefur verið sýndur yfir 30 sinnum um land allt.


Bósasaga er all frjálsleg leikgerð á samnefndri fornsögu. Sagan hefur oft verið litin hornauga enda er efni hennar nokkuð klúrt. Samt hefur hún alltaf notið vinsælda en menn fara bara ekki hátt með það. Sama á við um þennan leik hann hefur skemmt fólki um allt land.
Hér er á ferðinni leikur sem er tilvalin á ýmis mannamót en þó skal hafa í huga að æskilegt er að áhorfendur hafi náð 16 ára aldri.


LEIKUR ÁN ORÐA
Höfundur: Samuel Beckett.
Leikari: Elfar Logi Hannesson
Tónlist: Kristinn Jóhann Níelsson
Ljós: Friðþjófur Þorsteinsson.
Leikmynd: Guðjón Ólafsson.
Leikstjórn: Guðjón Ólafsson.
Frumsýnt: 12. apríl 2001 í Edinborgarhúsinu á Ísafirði.
Sýningar: Á Ísafirði og á Bíldudal.

Manni er kastað fyrirvaralaust og án nokkurra útskýringa í eyðimörk. Hann reynir ákaft að komast í burtu en er alltaf kastað til baka aftur. Reynir að hafa það af í auðninni en allt sem hann byrjar að gera nær hann ekki að ljúka við sökum óvenjulegra og óútskýranlegra orsaka.


TRÖLLIÐ SEM PRJÓNAÐI
Byggt á sögu eftir Hallgrím Oddsson.
Leikgerð: Kómedíuleikhúsið.
Leikarar: Elfar Logi Hannesson, Hallgrímur Oddsson, Róbert Snorrason.
Höfundur tónlistar: Hallgrímur Oddsson.
Leikstjórn: Elfar Logi Hannesson, Róbert Snorrason.
Frumsýnt: 17. júní 1997 í Reykjavík.

Fjallar um dreng sem vaknar um hárauða nótt og heldur út í myrkrið í leit að deginum. Á leiðinni verða á vegi hans tröll, álfur og ýmsar furðuverur en allt fer þó vel á lokum.

TÖFRATASKAN
Höfundar, leikarar, leikstjórn: Elfar Logi Hannesson, Róbert Snorrason.
Frumsýnt: 17. júní 1997 í Reykjavík.

Trúðarnir Sebastian og Runólfur leika listir sínar, sýna töfrabrögð, akrobatik og fleiri listir. Kunnátta þeirra og hæfni í listinni er þó af skornum skammti og margt fer öðruvísi en þeir ætluðu.


KÓMEDÍA ÓPUS EITT
Höfundar, leikarar, leikstjórn: Elfar Logi Hannesson, Róbert Snorrason.
Frumsýnt: 1. október 1997 í Félagsheimilinu Baldurshaga á Bíldudal.
Sýningar: Á Bíldudal, Selfossi og í Möguleikhúsinu.

Byggð á þremur ólíkum sögum: Upphitun, Kjúklingurinn og fíblið og Bósa saga.


Free Hit Counter