Tvær þjóðlegar hljóðbækur árlega á aðeins 2.999.- Kómedíuleikhúsið heldur áfram á þjóðlegu nótunum og hefur nú stofnað sérstakan klúbb í kringum þjóðlegu hljóðbækurnar. Og er óhætt að segja að það borgi sig að vera í þessari Kómedíu. En með því að ganga í hljóðbókaklúbb Kómedíuleikhússins færðu árlega tvær þjóðlegar hljóðbækur á einstöku verði eða aðeins 2.999.- kr. Sem er hvorki meira né minna en 25% afsláttur af útsöluverði. Það er auðvelt að vera með þú einfaldlega sendir okkur tölvupóst á komedia@komedia.is eða bjallar í okkur í síma 891 7025. Hljóðbækurnar færðu að vori og að hausti. Það eru tveir greiðslumöguleikar í boði greiða með greiðslukorti eða millifæra inná reikning Kómedíuleikhússins og er greitt í upphafi áskriftar. Þjóðlegu hljóðbækur þessa árs eru Þjóðsögur frá Hornströndum og Jökulfjörðum sem kemur út núna í maí og í haust verður þjóðlega hljóðbókin Draugasögur sem mun auðvelda okkur myrkrið sem þá hellist yfir okkur. Þannig getur þú á einfaldan hátt eignast einstakt safn þjóðlegra hljóðbóka á frábæru verði auk þess að fá ýmis kómísk kjör.
25% afsláttur af þjóðlegum hljóðbókum Með því að tryggja þér áskrift af þjóðlegu hljóðbókunum ert þú einnig að tryggja þér frábært verð á öllum þjóðlegu hljóðbókum gömlum sem nýjum. Ákrifendur fá 25% afslátt af öllum bókunum og að vanda þarf ekki að greiða sendingarkostnað.
2 fyrir einn á 2 leiksýningar árlega Áskrifendur fá árlega tvöfalt tilboð á sýningar Kómedíuleikhússins 2 fyrir einn á tvær sýningar Kómedíuleihússins að eigin vali.
Tveir greiðslu möguleikar í boði í Hljóðbókaklúbbi Kómedíuleikhússins Greiða með greiðslukorti Við höfum samband við þig til að ganga frá greiðslunni
Einnig er hægt að leggja inná reikning Kómedíuleikhússins: Reikningur: 0156 – 26 – 64 Kennitala: 640401 – 2650 |
|