Fréttir
Kómedíuleikhúsið
Hljóðbókaklúbbur Kómedíuleikhússins
Sýningar
Verslun
Dagatal
Dimmalimm
Gísli Súrsson
Act alone
Tenglar
Hugsað upphátt
Hafa samband








Heimilisfang / contact information:
Túngata 17
400 Ísafjörður
Iceland
Tel. 8917025
Dimmalimm

dimmalimm_1.jpgGagnrýni úr Bæjarins Besta (pdf skjal)
Lagið Dimmalimm (wma skjal)
Höfundar: Elfar Logi Hannesson, Sigurþór A. Heimisson.
Leikari: Elfar Logi Hannesson.
Leikstjórn: Sigurþór A. Heimisson.

Það er oft skemmtilegt hvernig sögur verða til. Dimmalimm á sér mjög sérstaka sögu. Þannig var að Muggur var á ferðalagi vorið 1921 og var stefnan sett á Ítalíu þar sem hann hugðist vinna að stóru verki, altaristöflu með myndefninu Kristur læknar sjúka, en það efni hafði verið honum hugleikið allt frá 1916. Áður en þangað er haldið ætlar Muggur að heimsækja systur sína Guðrúnu og Gunnar Egilsson eiginmann hennar. Þau eiga litla dóttur sem heitir Helga sem er alltaf kölluð Dimmalimm og er mjög góð vinkona Muggs. Hann langar að færa frænku sinni eitthvað sérstakt og er að velta þessu fyrir sér um borð í flutningaskipinu. Hverju hafa nú litlar prinsessur eins og Helga gaman af? Hvað með ævintýrin? Þau eru nú alltaf skemmtileg. Prinsessa sér frosk verður vinur hans og svo allt í einu breytist hann í prins. En hvernig væri nú að hafa svan í staðinn fyrir frosk? Helga á líka lítinn frænda sem heitir Pétur, hann gæti verið prinsinn. Þannig mótast hugmyndin í kollinum á Muggi og hann byrjar að teikna myndir, skrifa texta við þær og úr verður ævintýrið Sagan af Dimmalimm. Þegar skipið kemur að landi er Dimmalimm tilbúin og Muggur kemur færandi hendi til litlu frænku sinnar. Maður getur rétt ímyndað sér hve glöð hún Helga litla var að fá ævintýri að gjöf sem er sérstaklega samið fyrir hana og það sem meira er hún og frændi hennar eru í aðalhlutverkunum. Það gerist bara ekki betra.
Það liðu meira en tuttugu ár þar til Dimmalimm var loks gefin út á bók. Hún varð strax mjög vinsæl og er í miklu uppáhaldi hjá börnum á öllum aldri enn þann dag í dag enda hefur hún verið prentuð í þúsundum eintaka á fjölda tungumála.

Free Hit Counter