Velkomin í vefverslun Kómedíuleikhússins. Hér er boðið uppá fjölbreytt úrval verka úr smiðju leikhússins. Allar vörur eru sendar hvert á land sem er og er ekkert póstburðagjald. Hægt er að greiða með greiðslukorti eða fá sendan reikning. Það er einfalt að panta sendu okkur bara tölvupóst á netfangið komedia@komedia.is Góða verslun.
HLJÓÐBÆKUR
ÞJÓÐSÖGUR FRÁ SÚÐAVÍK Hljóðbók Lesari: Elfar Logi Hannesson Lengd: 101 mín Verð: 1.999.- kr (FRÍ HEIMSENDING) Panta: komedia@komedia.is
Fimmta þjóðlega hljóðbók Kómedíuleikhússins er sérlega glæsileg. Að þessu sinni eru það þjóðsögur frá Súðavík sem eru í aðalhlutverki. Hér segir af álfum, draugum og ýmsum furðuverum. Sögufrægar persónur koma einnig við sögu en þar fara fremstir í flokki þeir Galdra - Leifi og Jón Indíafari. Þjóðsögur frá Súðavík er vönduð útgáfa á gömlu góðu þjóðsögunum sem standa ávallt fyrir sínu.
ÞJÓÐSÖGUR AF STRÖNDUM Hljóðbók Lesari: Elfar Logi Hannesson Lengd: 93 mín. Verð: 1.999.- kr Panta: komedia@komedia.is
Strandir eru mjög fægt og þekkt þjóðsagnasvæði þar sem álfar, draugar, tröll og ýmsar furðuverur hafa verið á sveimi lengur en elstu menn muna. Á þessari hljóðbók les Elfar Logi Hannesson, leikari, úrval sagna af Ströndum sem sótt eru í þjóðsagnasöfn Arngríms F. Bjarnasonar, Helga Guðmundssonar og Jóns Árnasonar. Sögunum er skipt niður í fimm flokka: Álfa- og huldufólkssögur, Draugasögur, Galdrasögur, Tröllasögur og loks Ýmsar sagnir. Þjóðlegu hljóðbækur Kómedíuleikhússins hafa fengið úrvals góðar viðtökur og víst er að Þjóðsögur af Ströndum er enn ein perlan í hljóðbókaútgáfu leikhússins.
.JPG) ÞJÓÐSÖGUR ÚR BOLUNGARVÍK Hljóðbók Lesari: Elfar Logi Hannesson Lengd: 93 mín. Verð: 1.999.- kr Panta: komedia@komedia.is
Á þessari hljóðbók les Elfar Logi úrval sagna úr safni fræðimannsins Finnboga Bernódussonar frá Bolungarvík. Sögurnar eru í bókinni Sögur og sagnir úr Bolungarvík sem naut mikilla vinsælda enda er bókin löngu uppseld. Bolungarvík er ekki stórt svæði en þar hefur margt merkilegt gerst enda skiptir stærðin sjaldan máli. Sögunum á þessari hljóðbók er skipt í þrjá flokka sem eru Dulræn fyrirbæri, Sjávarfurður og Tröllasögur. Þjóðsögur úr Bolungarvík er sannkölluð perla í þessari hljóðbókaútgáfu Kómedíuleikhússins enda er hér á ferðinni vönduð útgáfa þjóðsagna að vestan.
ÞJÓÐSÖGUR ÚR ÍSAFJARÐARBÆ Uppseld hjá útgefanda en er fáanleg á hinum ýmsu sölustöðum t.d. í Eymundsson og á Hótel Ísafirði. Annað upplag væntanlegt árið 2010. Hljóðbók Lesari: Elfar Logi Hannesson Lengd: 92. mín. Verð: 1.999.- kr. Panta: Uppseld hjá útgefanada en fæst jafnvel á sölustöðum þjóðlegu hljóðbókanna um land allt
Ísafjarðarbær er stórt og mikið sagnasvæði sem nær allt frá Dýrafirði til Hornstranda. Á þessari hljóðbók les Elfar Logi Hannesson, leikari, úrval magnaðra þjóðsagna úr Ísafjarðarbæ. Sögurnar eru alls 33 og er skipt niður í fimm þjóðsagnaflokka: Álfa- og huldufólkssögur, Draugasögur, Galdrasögur, Skrímslasögur og Tröllasögur. Þjóðsögur úr Ísafjarðarbæ er vönduð útgáfa sem inniheldur einstakan sagnaarf í vönduðum flutningi.
 ÞJÓÐSÖGUR ÚR VESTURBYGGÐ Uppseld hjá útgefanda en gæti verið fáanleg á hinum ýmsum sölustöðum hljóðbóka Kómedíuleikhússins t.d. í Eymundsson, Flakkaranum á Barðaströnd og í Sælukjallaranum á Patreksfirði. Annað upplag væntanlegt árið 2010. Hljóðbók Lesari: Elfar Logi Hannesson Lengd: 99. mín. Verð: 1.999.- kr. Panta: Uppseld hjá útgefanda en gæti verið að hún fengist á hinum ýmsu sölustöðum um land allt.
Vesturbyggð er mikið sagnasvæði þar hafa skrímsli, tröll, álfar og ýmsar furðuverur verið á sveimi svo elstu menn muna. Á þessari hljóðbók les Elfar Logi Hannesson, leikari, úrval þjóðsagna úr Vesturbyggð. Alls eru fluttar 33 sögur og er þeim skipt niður í fimm þjóðsagnaflokka: Álfa- og huldufólkssögur, Draugasögur, Galdrasögur, Skrímslasögur og Tröllasögur. Hér er á ferðinni vönduð útgáfa sem inniheldur einstakan sagnaarf í vönduðum flutningi.
BÆKUR
ÆSKUMYNDIR Höfundur: Þórarinn Hannesson. Útgáfuár: 2006 Tilboð: 999.- kr. Panta: komedia@komedia.is Þórarinn Hannesson er fæddur og uppalinn á Bíldudal en hefur síðustu 13 ár búið á Siglufirði. Æskumyndir er fyrsta ljóðabók hans en hann hefur sent frá sér þrjú rit og tvær geislaplötur með frumsömdum lögum og textum auk þess að eiga lög á safnplötum. En eftir hann liggja á annaðhundrað dægurlög og textar. Í þessari fyrstu ljóðabók sinni bregður Þórarinn upp myndum af uppvaxtarárum sínum fyrir vestan, viðfangsefnum barnanna og tíðarandanum á Bíldudal. Náttúrulegur einfaldleikinn grípur lesandann með sér aftur til æskuáranna og vekur upp í honum barnið sem upplifir veröldina með sínum einstaka hætti. Yngri lesendur fá hér mynd af veröld barnanna fyrir tveimur til þremur áratugum. Margt hefur breyst og ekki allt til batnaðar, eða hvað? Myndir teiknaði Marsibil G. Kristjánsdóttir listamaður frá Þingeyri.
ÍSLENSKIR EINLEIKIR Höfundar: Ýmsir Útgáfuár: 2006 Bls. 308 Tilboðsverð: 899.- krónur Var áður: 3.290.- krónur Panta: komedia@komedia.is Hér er á ferðinni alveg einleikin bók sem jafnframt er fyrsta útgáfa sinnar tegundar hér á landi. Í bókinni eru alls 11 íslenskir einleikir frá ýmsum tímum og af ýmsum gerðum fyrir alla aldurshópa. Leikirnir í bókinni eru: Dimmalimm, Gísli Súrsson, Glæsibæjareintölin, Hinn fullkomni jafningi, Hversu langt er vestur, Leifur heppni, Óvinurinn, Sagan af Loðinbarða, Síðasta segulband Hrapps, Sveinsstykki, Þrjár Maríur. Jón Viðar Jónsson ritar formála bókarinnar.
LEIKRÆN TJÁNING Höfundur: Elfar Logi Hannesson Verð: 1.500.- kr Panta: komedia@komedia.is Bók sem inniheldur fjölbreyttar æfingar í leikrænni tjáningu allt frá leikjum til spuna og leikhússlagsmála. Gert er grein fyrir hverri æfingu fyrir sig, fyrir hvaða aldur hún henti best og nefnd þau áhöld sem þarf hverju sinni. Leikræn tjáning er tilvalin bók fyrir alla þá sem fást við leiklist hvort heldur kennara eða leikhúsáhugafólk.
HVAÐ VEIST ÞÚ UM KVIKMYNDIR? Höfundar: Elfar Logi Hannesson, Þórarinn Hannesson Útgáfuár: 2001 Bls. 65 Verð: 299.- krónur Panta: komedia@komedia.is Fyrsta frumsamda íslenska spurningabókin um heim kvikmyndanna. Hefur að geyma 300 spurningar um ýmislegt er tengist kvikmyndasögunni í Hollywood sem og á Íslandi. Spurningunum er skipt niður í eftirtalda flokka: Kvikmyndir - Stjörnulíf - Vísbendingaspurningar - 1X2 - Óskar frændi - Óskar frændi 1X2 - Íslenskar kvikmyndir. Svörin eru í lok hvers kafla. Þetta er ómissandi bók fyrir alla sem hafa áhuga á kvikmyndum.
SAGA GLEÐISVEITAR Höfundur: Þórarinn Hannesson Útgáfuár: 2001 Verð: 500.- krónur Panta: komedia@komedia.is Saga hljómsveitarinnar Græni bíllinn hans Garðars frá Bíldudal rakin í máli og myndum. Rétt er að benda áhugasömum á að einnig er hægt að panta geislaplötu með sveitinni enda fer það vel samin við lestur bókarinnar.
HLJÓMSVEITIN BRESTUR FRÁ BÍLDUDAL Höfundur: Þórarinn Hannesson Útgáfuár: 2000 Verð: 500.- krónur Panta: komedia@komedia.is Hér er rakin saga hljómsveitarinnar Brestur sem gerði allt vitlaust á sveitaböllunum fryrir vestan hér í denn.
DVD
STEINN STEINARR - EINLEIKUR Á DVD DVD Leikari: Elfar Logi Hannesson Handrit: Elfar Logi Hannesson, Guðjón Sigvaldason Leikstjórn: Guðjón Sigvaldason Sértilboð: 899.- krónur Panta: komedia@komedia.is Einleikur Kómedíuleikhússins Steinn Steinarr er nú loksins fáanlegur á DVD. Leikurinn er byggður á verkum og ævi skáldsins en 98% textans er eftir Stein sjálfan. Þetta er mjög áhugaverð, vel gerð og skemmtileg sýning sem hlaut mikla athygli þegar hún var frumsýnd árið 2003. Ekki má heldur gleyma fræðslugildi verksins sem er mjög mikið. Steinn Steinarr er eitt þekktasta ljóðskáld Íslendinga á 20. öld. Hann hét réttu nafni Aðalsteinn Kristmundsson og fæddist árið 1908. Þegar Steinn kom fram á ritvöllinn hóf hann þegar að brjóta reglur sem ríkt höfðu í skáldskap um langa hríð og varð mjög umdeildur fyrir vikið. Harðorðar greinar birtust í blöðum um Stein og skáldskapur hans var kallaður tómvitleysa af sumum. Aðrir á hinn bóginn fögnuðu framlagi hans og töldu að loksins væri komið fram skáld sem þyrði að breyta staðnaðri, íslenskri ljóðlist. Núna hrífast flestir af skáldskap Steins. Ljóð hans eru þjóðinni mjög kær og við mörg þeirra hafa verið samin lög. Steinn Steinarr andaðist árið 1958, rétt tæplega fimmtíu ára að aldri.
TÓNLIST - GEISLAPLÖTUR
STOLNAR STUNDIR Þórarinn Hannesson Útgáfuár: 2005 Verð: 1.200.- krónur Panta: komedia@komedia.is Inniheldur 12 frumsamin lög og texta.
ENDALAUST Græni bíllinn hans Garðars Útgáfuár: 2003 Verð: 1.000.- krónur Panta: komedia@komedia.is Inniheldur sex lög með þessari vinsælu hljómsveit frá Bíldudal. Meðal laga á þessum diski má nefna Bílddælska slagarann Senjorinn.
MÁ ÉG KÍTLA ÞIG? Þórarinn Hannesson Útgáfuár: 2001 Verð: 1.200.- krónur Panta: komedia@komedia.is Fyrsti geislaplata Þórarins Hannessonar tónlistarmanns frá Bíldudal. Inniheldur 12 frumsamin lög og texta. |
|