ACT ALONE LEIKLISTARHÁTÍÐ Á ÍSAFIRÐI Kómedíuleikhúsið sér um listræna stjórnun ACT ALONE leiklistarhátíðarinnar á Ísafirði sem er haldin árlega yfir sumartímann. ACT ALONE er helguð einleikjum og er eina árlega leiklistarhátíðin á Íslandi. ACT ALONE 2010 verður haldin dagana 13. til 15. ágúst á Ísafirði og er þetta sjöunda árið í röð sem hátíðin er haldin. Þegar er byrjað að bóka sýningar á hátíðina og er óhætt að lofa einleiknum stuði í einleikjabænum í sumar. Öllum er velkomið að sækja um að sýna á Act alone einnig eru allar hugmyndir varðandi dagskrá hátíðarinnar vel þegnar. Vakin er athlygi á því að umsóknarfrestur fyrir leiksýningar rennur út til og með 2. mars 2010. ACT ALONE leiklistarhátíðin hefur verið haldin sex sinnum en hún fór fyrst fram árið 2004. Á þessari fyrstu einleikjahátíð var boðið uppá þrjá íslenska einleiki og fyrirlestur um einleiksformið. Ári síðar var dagskráin mun viðameiri með einum 10 einleikjum þar á meðal var gestaleikur frá Króatíu og að auki voru haldnir fyrirlestrar. Kvikmyndafyrirtækið digi-Film á Ísafirði gerði heimildarmynd um hátíðina er nefnist Leikur einn og var hún sýnd í Sjónvarpinu haustið 2006. ACT ALONE 2006 var enn stærri og viðameiri en hinar fyrri. Á dagskránni voru 13 einleikir, 10 íslenskir og þrír erlendir. Af innlendu sýningum hátíðarinnar má nefna Mike Attack Kristjáns Ingimarssonar og jólasýningu Hallveigar Thorlacius Súpan hennar Grýlu. Erlendu gestir hátíðarinnar voru þeir Ole Brekke, frá Danmörku, Zeljko Vukmirica, frá Króatíu, og Eric Bogosian, frá Bandaríkjunum. Tvær nýjungar voru á ACT ALONE 2006 fyrst ber að nefna leiklistarnámskeið undir stjórn þeirra Ole og Zeljko. Einnig var haldin bókamarkaður þar sem boðið var uppá rit sem tengjast leiklist. Óhætt er að segja að hátíðin hafi heppnast frábærlega og var aðsókn framar öllum vonum því fullt var út úr dyrum á öllum sýningunum. ACT ALONE 2007 var sú viðamesta í sögu hátíðarinnar enda bættist einn dagur við hátíðarhöldin og stóð gleðin því yfir í fimm daga. Á dagskránni voru vandaðir innlendir og erlendir leikir auk námskeiða, málþings, fyrirlesturs ofl. Enn var bætt í á Act alone 2008 þar sem öll fyrri met hátíðarinnar voru slegin. Boðið var uppá 25 sýningar, leiklistarnámskeið og fyrirlestur. Fjölmargar nýjungar voru á Act alone 2008 nú var einnig einleikinn dans og má því segja að Act alone sé nú orðin alsherjar listahátíð með leik, dansi, tónlist og söng. Ein af nýjungum Act alone 2008 voru sérstök Act alone verðlaun sem voru afhent af dómnefnd er var skipuð þremur áhorfendum á Ísafirði. Tvenn verðlaun voru afhent fyrir bestu sýninguna og einnig var besti leikarinn valinn. ACT ALONE er sannarlega komin til að vera þökk sé frábærum listamönnum sem tekið hafa þátt í hátíðinni og ekki síður öllum þeim fyrirtækjum og einstaklingum sem hafa stutt verkefnið. Á ACT ALONE 2009 var boðið uppá sérlega vandaðar sýningar. Að þessu sinni voru sýningar mun færri en áður og hátíðin stóð yfir í þrjá daga í stað fimm. Ástæðan var einkum sú að aðstæður á Íslandi urðu æði Kómískar á vorum tímum og því varð að hagræða og breyta og bæta ACT ALONE ef halda ætti áfram fjörinu. Boðið var uppá fimm innlendar sýningar og eina erlenda. Aðsókn að hátíðinni var með mesta móti og ACT ALONE hélt velli og verður haldin í sjöunda sinn árið 2010. Undirbúningur er þegar hafin og má fylgjast með gangi mála á heimasíðu hátíðarinnar www.actalone.net Stjórn ACT ALONE 2010 skipa þau Jón Páll Hreinsson, Jón Viðar Jónsson, Marsibil G. Kristjánsdóttir og Rebekka A. Ingimundardóttir. Listrænn stjórnandi er Elfar Logi Hannesson. stofnandi hátíðarinnar. Heimasíða Act alone www.actalone.net |
|