Fréttir
Kómedíuleikhúsið
Hljóðbókaklúbbur Kómedíuleikhússins
Sýningar
Verslun
Dagatal
Dimmalimm
Gísli Súrsson
Act alone
Tenglar
Hugsað upphátt
Hafa samband








Heimilisfang / contact information:
Túngata 17
400 Ísafjörður
Iceland
Tel. 8917025


KÓMEDÍULEIKHÚSIÐ

Kómedíuleikhúsið er fyrsta atvinnuleikhúsið á Vestfjörðum. Leikhúsið var stofnað árið 1997 af Elfari Loga Hannessyni og Róberti Snorrasyni. Á fyrsta starfsári setti leikhúsið upp þrjá leiki, Tröllið sem prjónaði, Töfrataskan og Kómedía ópus eitt. Síðan 2001 hefur Kómedíuleikhúsið einkum einbeitt sér að einleikjum. Fyrsti leikurinn var Leikur án orða eftir Samuel Beckett, síðan komu sex leikir úr smiðju leikhússins Muggur (2002), Steinn Steinarr (2003), Gísli Súrsson (2005), Dimmalimm (2006), Skrímsli (2007), Jólasveinar Grýlusynir (2007), Pétur og Einar (2008) og Auðun og ísbjörninn (2009). Vinsælasti leikur Kómedíu er án efa Gísli Súrsson sem hefur verið sýndur yfir 200 sinnum. Gísli hefur tvívegis hlotið verðlaun á alþjóðlegum leiklistarhátíðum í Þýskalandi og í Albaníu. Nýjasti leikur Kómedíuleikhússins er hinsvegar tvíleikur. Hér er á ferðinni hápólitískur gamanleikur Heilslugæslan (2009) eftir Lýð Árnason lækni. Leikarar eru Elfar Logi Hannesson og Margrét Sverrisdóttir.  Kómedíuleikhúsið sér um listræna stjórn leiklistarhátíðarinnar ACT ALONE sem er haldin árlega yfir sumartímann á Ísafirði. Hátíðin er helguð einleikjum og er aðgangur ókeypis sem er nú bara einleikið. ACT ALONE var fyrst haldin árið 2004 og hefur vegur hátíðarinnar dafnað vel síðan því á hátíðinni 2008 voru 25 sýningar á dagskránni. ACT ALONE 2009 var haldin dagana 14. - 16. ágúst. Undirbúningur er þegar hafin að sjöundu ACT ALONE sem verður haldin 13. - 15. ágúst 2010 á Ísafirði. Kómedíuleikhúsið hefur gefið út tvær bækur. Leikræn tjáning eftir Elfar Loga Hannesson en hún er löngu uppseld. Sumarið 2006 gaf Kómedíuleihúsið út bókina Íslenskir einleikir sem inniheldur 11 leiki allt frá Gísla Súrssyni til Síðasta segulbands Hrapps. Kómedíuleikhúsið hefur einnig gefið út fimm þjóðlegar hljóðbækur Þjóðsögur úr Vesturbyggð, Þjóðsögur úr Ísafjarðarbæ, Þjóðsögur úr Bolungarvík, Þjóðsögur af Ströndum og Þjóðsögur frá Súðavík. Hljóðbækurnar og einleikjabókin fást í vefverslun Kómedíu og er sent hvert á land sem er og líka til úttlanda.

Free Hit Counter