Fréttir
Kómedíuleikhúsið
Hljóðbókaklúbbur Kómedíuleikhússins
Sýningar
Verslun
Dagatal
Dimmalimm
Gísli Súrsson
Act alone
Tenglar
Hugsað upphátt
Hafa samband








Heimilisfang / contact information:
Túngata 17
400 Ísafjörður
Iceland
Tel. 8917025
FRÉTTIR

31. 08 2010. 15:36
Leiklistarskóli Kómedíuleikhússins
Kómedíuleikhúsið hefur stofnað leiklistarskóla sem hefur starfsemi sína í september. Um er að ræða alhliða leiklistarnám fyrir alla aldurshópa eða frá 5 ára og uppúr. Sérstakur kynningarbæklingur um skólann er væntanlegur úr prentun á allra næstu dögum og verður sendur sjóðheitur inná öll heimili á norðanverðum Vestfjörðum. Skólinn er til húsa í Listakaupstað, Norðurtangahúsinu, á Ísafirði og þann 11. september verður opið hús þar sem áhugasamir geta kynnt sér skólann. Sama dag hefst skráning á námskeið skólans en fyrstu námskeiðin hefjast 20. september en skólasetning verður þann 19. Aðalkennarar við Kómedíuskólann eru þeir Elfar Logi Hannesson og Ársæll Níelsson sem báðir eru menntaðir í Kómedíuskólanum í Kaupmannahöfn. Nánari upplýsingar um Leiklistarskóla Kómedíuleikhússins verður að finna hér á heimasíðunni á næstu dögum. Gaman er að geta þess að Leiklistarskóli Kómedíuleikhússins er fyrsti leiklistarskóli Vestfjarða. En áhugasamir mega alveg byrja að skrá sig eða fá nánari upplýsingar með því að senda okkur tölvupóst á netfangið komedia@komedia.is

Það er Menningarráð Vestfjarða sem styrkir stofunun Leiklistarskóla Kómedíu og þökkum við mikið vel fyrir þeirra framlag og trú á verkefninu.
» meira

22. 08 2010. 01:18
Leikárinu lokið
Leikári Kómedíuleikhússins 2009 - 2010 er nú lokið. Nú tökum við okkur örstutt sumarfrí en kynnum svo nýtt fjölbreytt og spennandi leikár í september. Þökkum fyrir viðburðaríkt leikár og hlökkum til að hitta ykkur í hinu Kómíska leikhúsi á komandi leikári.
» meira

17. 08 2010. 10:52
Gaggað í Sjóræningjahúsinu Patró á fimmtudag
Kómedíuleikhúsið hefur sýnt leikritið Gaggað í grjótinu í Melrakkasetrinu í Súðavík við geggjaðar og gaggðar viðtökur. Nú verður skundað suður á firði nánartiltekið til Patreksfjarðar en á fimmtudag verður Gaggað í grjótinu sýnt í Sjóræningjasetrinu á Patró. Sýningin hefst kl.21 sama gamla góða miðaverðið 1.500.- kr og verða miðar seldir við innganginn.

Í Gaggað í grjótinu fáum við einstakt tækifæri til að bregða okkur á greni með ónefndri refaskyttu sem kallar ekki allt ömmu sína. Saga skyttunnar er nefnilega ekki síður merkileg en skolla sjálfs. Meðan skyttan liggur og vaktar grenið styttir hann sér stundir og segir sögur af sjálfum sér og öðrum refaskyttum. Ævintýrin sem skyttunar hafa lent í í viðureigninni við melrakkann eru kannski lygilegar eða hvað?

Leikari er Elfar Logi Hannesson, Marsbil G. Kristjánsdóttir hannar leikmynd og búninga, höfundur og leikstjóri er Halla Margrét Jóhannesdóttir en það er Kómedíuleikhúsið á Ísafirði sem setur leikinn á svið í samstarfi við Melrakkasetur Íslands.
» meira

09. 08 2010. 20:32
Act alone í sjöunda sinn
Ísafjörður er mikill lista- og menningarbær og ekki bara það heldur einnig einleikjabær. Síðustu árin hefur Ísafjörður sinnt einleiknum á einleikin hátt með því að halda sérstaka leiklistarhátíð helgaða einleiknum sem heitir einfaldlega Act alone. Nú er enn á ný blásið í einleikjalúðrana í einleikjabænum og sjöunda Act alone hátíðin gengur í garð. Í gegnum árin hafa fjölmargir innlendir og erlendir einleikarar sýnt listir sínar á hátíðinni en hátt í 90 sýningar hafa verið sýndar á Act alone til þessa. Fjölmargt einleikið verður á Act alone í ár og er óhætt að segja að fjölbreytileiki formsins sé í aðalhlutverki. Trúðleikur, uppistand, dans, söngur, einsmanns leikrit og allt þar á milli. Meðal sýninga má nefna Hetja, Völuspá, Pólitík og sérstaka gestasýningu frá Silamiut leikhúsinu í Grænlandi, Long, Long ago... Sýningarstaðir Act alone verða bæði úti og inni. Leikurinn hefst á Silfurtorgi í hjarta Ísafjarðar með trúðsleik fyrir alla fjölskylduna. Eftir það verður skundað á Austurvöll á Ísafirði og þaðan liggur svo leiðin í Edinborgarhúsið þar sem leikurinn hefst með sérstakri gestasýningu frá Grænlandi. Einnig verður boðið uppá Brönsleikhús á veitingastaðnum Við pollinn á Ísafirði og á sunnudag lýkur hátíðinni með eins manns tónleikum á Gíslastöðum í Haukadal Dýrafirði. Það ættu allir að geta fundið sér eitthvað við hæfi á Act alone. Dagskrá Act alone er á á heimasíðunni actalone.net en þar má einnig finna allar upplýsingar um hátíðina allt frá upphafi sem og ýmiskonar fóðleik um einleikjaformið. Það er Elfar Logi Hannesson sem er listrænn stjórnandi Act alone en stjórn hátíðarinnar skipa Jón Páll Hreinsson, Jón Viðar Jónsson, Marsibil G. Kristjánsdóttir og Rebekka A. Ingimundardóttir.



Dagskrá Act alone 2010



Föstudagur 13. ágúst

Silfurtorg Ísafirði

Kl: 15.00.

Johnny slær í gegn - Trúðleikur

Leikari, höfundur, búningar: Ársæll Níelsson

Leikstjórn: Ole Brekke



Flækingurinn Johnny væflast um landið í leit að stóra tækifærinu. Honum er margt til lista lagt en hefur ekki gefist kostur á að sýna sig og sanna. Hans heitasti draumur er að slá í gegn og hljóta viðurkenningu fyrir snilligáfu sína í sviðslistum. En þegar tækifærið gefst, getur hann þá staðið undir væntingum?

Ársæll hefur nýlokið námi við leiklistarskóla í Kaupmannahöfn. Þessi sýning er byggð á lokaverkefni hans af fyrsta ári námsins.



Austurvöllur Ísafirði

Kl: 17.00

HUGLEIÐINGAR Á AUSTURVELLI

Austurvöllur, garðurinn við hliðina á sundhöllinni

Hörður Torfa



Hörður Torfa stóð í ströngu veturinn 2008 – 2009 á Austurvelli í Reykjavík. En Austurvöllur er víða líka á Ísafirði og hér fjallar Hörður í gegnum sönginn og sögurnar um þennan einstaka tíma á Austurvelli í borginni þennan sögulega vetur í Íslandssögunni.



Edinborgarhúsið Ísafirði

KL: 20.00

LONG, LONG AGO….

Edinborgarhúsið

Leikari: Makka Kleist

Leikstjórn: Svenn B. Syrin

Silamiut leikhúsið í Grænlandi



Í þessari sýningu býðst áhorfendum einstakt tækifæri til að fræðast um rætur og menningu Inúíta. Sýningin innheldur þrjár Inúítasögur sem heita Creation story, The Mother of the Sea og The Sacred gift of the Celebration.



Edinborgarhúsið Ísafirði

Kl.22

I'M A COP

Leikari, höfundur, leikstjórn: Smári Gunnarsson



I'm a Cop er saga um mann sem er umhugað um hvernig hann er séður af öðrum. Náttúrulegir eiginleikar hans eru á skjön við það starf sem hann hefur valið sér og hann á í endalausri baráttu við að hækka sinn persónulega status í samskiptum við aðra svo hann sé eins mikilvægur og hann getur mögulega orðið. Tilvistarkreppa, valdsýki, löngunin að vera "Einhver" og eiga einhvern að eru meðal þema sem eru tekin fyrir í þessari ákveðnu skopstælingu af Hollywood löggunni. Verkið er devised og var skapað útfrá rannsóknarvinnu höfundar um status. Leikið er á ensku.



Laugardagur 14. ágúst

Við pollinn Ísafirði

Kl: 12.09

KRAPP, SVÍNASTEIK OG PÍKUSÖGUR

Brönsleikhús Við pollinn Ísafirði

Flytjendur: Leynigestir



Þrír vinsælir en ólíkir einleikir verða kynntir á sérstöku Brönsleikhúsi á veitingastaðnum Við pollinn á Ísafirði. Einleikirnir á matseðlinum eru Síðasta segulband Krapps eftir Samuel Beckett, Drög að svínasteik eftir Raymond Cousse og loks Píkusögur eftir Eve Ensler. Fjallað verður um leikina í stuttu máli og sérstakir leynigestir leiklesa brot úr verkunum.



Edinborgarhúsið

Kl: 15.00

LUZ

Dansari: Henna Riikka Nurmi



Dansverkið LUZ sem þýðir ljós er leikur finnska dansarans Hennu að finnsku orðunum valo (ljós), varjo (skuggi), uni (draumur) og harha (missýning). Efnið í verkinu er sótt víðar m.a. í ljóð eftir J.R.R. Tolkien úr meistaraverki hans Hringadróttinssögu. Ljós og myrkur koma einnig við sögu og hversu mikilvægt það er okkur mannfólkinu. Hvað er í myrkrinu og hvað sérðu þar og heyrir….????



Edinborgarhúsið

Kl: 17.00

HETJA

Leikari: Kári Viðarsson

Höfundar, leikmynd/búningar: Kári Viðarsson og Víkingur Kristjánsson

Leikstjórn: Víkingur Kristjánsson

Frystiklefinn, Snæfellsbæ



Hetja er gamanleikur byggður á Bárðarsögu Snæfellsás. Sýningin fjallar um feðgana Bárð Snæfellsás og Gest Bárðarson og hið flókna samband á milli þeirra. Verkið er, eins og sagan sem hún byggir á, ýkt, ótrúleg og reynir á ímyndunarafl áhorfenda sem skipa stórann sess í sýningunni. Hetja þroskasaga um feðga, fyrir feðga og alla þá sem þekkja feðga eða tengja á einhvern hátt við feðga.



Edinborgarhúsið

Kl: 20.00

VÖLUSPÁ

Leikari: Pétur Eggerz

Tónleikari: Birgir Bragason

Höfundur: Þórarinn Eldjárn

Leikmynd/búningar: Anette Werenskiold

Leikstjórn: Peter Holst

Möguleikhúsið



Völuspá var frumsýnd í Möguleikhúsinu á Listahátíð í Reykjavík vorið 2000. Sýningin var tilnefnd til menningarverðlauna DV fyrir árið 2000 og hlaut Grímuna - íslensku leiklistarverðlaunin 2003, en snýr nú aftur eftir nokkurt hlé. Verkið byggir á hinni fornu Völuspá og veitir sýn inn í hugmyndaheim heiðinnar goðafræði. Þar segir frá fróðleiksfýsn Óðins, græðgi í skáldamjöðinn, forvitni hans um nútíð og framtíð, Fenrisúlfi, Baldri, Loka, Hugin og Munin og fleiri persónum. Völuspá hefur gert víðreist, m.a. verið sýnd á hátíðum í Rússlandi, Svíþjóð, Kanada, Finnlandi, Færeyjum, Bandaríkjunum, Þýskalandi og Frakklandi.



Edinborgarhúsið

Kl: 22.00

PÓLITÍK

Leikari: Davíð Þór Jónsson

Höfundar: Davíð Þór Jónsson, Ricky Gervais



Eitt vinsælasta uppistand í sögu Bretlands eftir Ricky Gervais höfund The Office flutt staðfært og þýtt af Davíð Þór Jónssyni. Rétt er að taka það sérstaklega fram að sýningin er ekki við hæfi barna sökum óheflaðs orðbragðs og einnig er rétt að vara viðkvæmar sálir við.



Sunnudagur 15. ágúst

Gíslastaðir Haukadal Dýrafirði

Kl: 15.00

SKÚLI MENNSKI

Flytjandi: Skúli Þórðarson



Tónlistarmaðurinn Skúli mennski hefur verið starfandi í um áratug og hefur komið víða við. Spilað hérlendis og erlendis með ótrúlegasta fólki, við ólík tækifæri og í óútreiknanlegustu aðstæðum. Lög hans fjalla um kærleika, von og trú. Skúli gaf út plötuna Skúli mennski og hljómsveitin Grjót fyrr á árinu. Hann mun flytja lög af plötunni í bland við eldra og nýrra efni og gefa gestum innsýn í sögu og aðdraganda laganna.
» meira

  eldri »

Free Hit Counter